Breiðdælingurinn
    <description>Breiðdælingurinn</description>
Er heimurinn að fúlna?
      <description>Ég hlustaði á morgunútvarpið á leiðinni í vinnuna á bílnum mínum spúandi út eiturlofti og spænandi upp malbikið. Það var verið að segja frá súrnun  heimshafanna og áhrifum þess. Bíllinn sem var fyrir framan mig var enn verri en nokkurn tíma minn bíll. Ég hefði getað sleppt því að fara á bílnum en þá hefði ég ekki hlustað á morgunútvarpið í þessu hæga sæti og þá hefði ég kannski ekki leitt hugann að vandanum. 
En það afsakar ekki neitt . Ekki heldur það að aðrir eru ekkert betri. Faðir minn hafði meiri skilning á umhverfismálum en þorri fólks hefur nú svo ekki þarf ég að kvarta um... (more)</description>
Jóga
      <description>Nú er liðið u.þ.b. hálft ár síðan ég hóf að iðka jóga. Það er nokkurn veginn jafnlangur tími og bloggið mitt hefur næstum legið niðri. Getur það verið vegna þess að jógað fyllir svo hug minn af friði og ró að mig langar ekki til að segja misjafnt um nokkurn mann. Hafa skrif mín e.t.v. byggst á illkvittni og ljótum hugsunum? Framsóknarflokkurinn má bara vera svona eins og hann er og ef vinur minn Jón Sigurðsson vill vera framsóknarráðherra, þá má hann það og ég óska honum alls hins besta.
Maður og tækni
      <description>Það hefur ekkert hjápað mér að gerast eldri borgari.
Mér hefur ekki tekist að rekja ýmis áhugaverð vandamál sem hafa steðjað að mér og fjölskyldu minni. Ber þar hæst vissa endurnýjun hreinlætistækja sem við byrjuðum að vinna að í september. Aldrei þessu vant höfðum við lagt til hliðar fjármagm en þá var þrautin þyngri að finna iðnarmenn. Þetta hefur skapað spennu í líf mitt svo ég hef ekki fundið mig tilknúna að fara í bíó eða að lesa spennusögur og synd að hafa ekki haft tækifæri til að skrá þetta í bloggheimum. 
En það eru skýringar á öllu. Það hefur verið vesen í sambandi við tæknina.... (more)</description>
Ég er orðinn eldri borgari
      <description>Í gær innritaði ég mig í félag eldri borgara. Það var stórt skref. Ég hef að vísu lengi ætlað að stíga það. Það sem ýtti við mér var hugmyndin um að ég gæti á þann hátt náð mér í iðnaðarman. 
Ég er orði langleið á að geta ekki þrifið mig. Baðkarinu var hent út fyrir u.þ.b. þremur vikum. Sundlaugarnar eru að vísu skammt undan og ég er með óleypis aðgang sem borgarstarfsmaður. Í sama mund og múrainn birtist gerði ég mér allt í einu grein fyrir að áður en nokkuð gerðist þyrfti ég rafvirkja. Þá gekk ég éf félagið sem leiddi að vísu ekki til neins því rafvirkinn sem ég hitti á vildi fyrst og... (more)</description>
Haust
      <description>Enn og aftur ætla ég að takast á við það að skrifa dagbók á netinu. Ég hef saknað þess, líklega vegna þess að þetta er einföld leið til að vera í sambandi við sjálfan sig. 
Mig langar til að ræða um haustið vegna þess að haustið er minn uppáhalds ársíð. Ég veit ekki fyllilega af hverju en sumt veit ég en annað veit ég ekki. Sumt sem er heillandi við haustið er leyndarmál. 
Haustin eru að verða fegurri og fegurri og þau eru líka að lengjast. Svona er lífið dásamlegt. </description>
Forgangsröðun
      <description>Í kvöld hefði ég átt að vera í óvissuferð í sambandi við vinnuna eftir langan vinnudag sem var helgaður samstarfspælingum. En í gegnum krókaleiðir, hafði ég komist að því, að "óvissuferðin" var hvalaskoðunarferð og það átti að snæða um borð. Sjóferðir eru ekkert nýtt fyrir mér. Ég hef farið marga hringi í kringum landið og alltaf sjóveik, með Heklunni, Esjunni og Herðubreið (Herðubreið var best). Full af samviskusemi tók ég hlýfðarföt með mér í vinnuna, ákveðin í því að vera félagsleg. Ég var farin að velta því fyrir mér hort það væru ælupokar um borð. Mitt í afar fróðlegum fyrirlestri um... (more)</description>
Ekki lengur fötluð
      <description>Í dag kvaddi ég fötlun mína og henti fatlanum í ruslið. Hann er búinn að gera sitt gagn en nú er ég því sem næst búin að jafna mig. Um leið og ég lét hann fara ákvað ég með sjálfri mér að ef ég einhvern tíma í framtíðinni þarf á fatla að halda þá ætla ég að sjá til þess að hann verði fallegur. Þessir fatlar sem manni eru skaffaðir einkennast af ljótleika. Þeir minna mig á gömlu bómullarsokkana sem ég neyddist á vorin til að klæðast vegna sólbruna á fótunum og var haldið uppi með sokkaböndum.  Mér var alltaf illa við þessa sokka en þeir voru ögn skárri en ullarsokkarnir sem stungu og gerðu... (more)</description>
bless
      <description>fer til svíþjóðar í fyrra málið
bless
gísli minn
      <description>það er komin plata frá rússlandi
frá pétursborg
fullkomin tónlist
hvers konar tónlist er þetta?
það er  ekki hægt að kategórísera hann gísla minn
hann lætur rætast draum sem faðir hans átti en gísli kynntist aldrei
hann dreymdi um að það væri ekk hægt að setja sig eitthvert hólf
nú hefur hann (pabbinn) fengið sitt hólf en hann er kannski tiltölulega einn þar
það fylgja því bæði kostir og gallar að passa ekki í hólf
aðalatriðið er að við höfum kjark til að hlusta á þannig tónlist ef hún er góð
og njóta</description>
ég er handleggsbrotin
      <description>ég er hadleggsbrotin
kannski er réttara  að segja brákuð
ég hef gott af því
ég læri
skrifa með litlum stöfum með vinstri hendi
ég þarf að hugsa
hugsa til breka sonarsonar míns
hann er einhentur 
og verður
ég spjara mig og hann líka þótt það sé stærra mál</description>