Höfundur:

Bergþóra Gísladóttir
Álfheimar 32
104 Reykjavík
s: 452-4249
bergis@ismennt.is









rss feed

Dec 5, 2006
Er heimurinn að fúlna?

Ég hlustaði á morgunútvarpið á leiðinni í vinnuna á bílnum mínum spúandi út eiturlofti og spænandi upp malbikið. Það var verið að segja frá súrnun  heimshafanna og áhrifum þess. Bíllinn sem var fyrir framan mig var enn verri en nokkurn tíma minn bíll. Ég hefði getað sleppt því að fara á bílnum en þá hefði ég ekki hlustað á morgunútvarpið í þessu hæga sæti og þá hefði ég kannski ekki leitt hugann að vandanum.

En það afsakar ekki neitt . Ekki heldur það að aðrir eru ekkert betri. Faðir minn hafði meiri skilning á umhverfismálum en þorri fólks hefur nú svo ekki þarf ég að kvarta um innrætingarleysi. Ég gjörþekki hvað orðið sjálfbær þróun þýðir og veit hvað til þarf. Ég á mér draum um að eignast kot og hafa hænur, kartöflugarð og nokkrar kindur. En það er draumur, nútíminn og veruleikinn er annað og það væri e.t.v. betra að huga að því hverju er hægt breyta þar.


Posted at 02:42 pm by bergis
Comments (1)  

Dec 4, 2006
Jóga

Nú er liðið u.þ.b. hálft ár síðan ég hóf að iðka jóga. Það er nokkurn veginn jafnlangur tími og bloggið mitt hefur næstum legið niðri. Getur það verið vegna þess að jógað fyllir svo hug minn af friði og ró að mig langar ekki til að segja misjafnt um nokkurn mann. Hafa skrif mín e.t.v. byggst á illkvittni og ljótum hugsunum? Framsóknarflokkurinn má bara vera svona eins og hann er og ef vinur minn Jón Sigurðsson vill vera framsóknarráðherra, þá má hann það og ég óska honum alls hins besta.

 


Posted at 03:50 pm by bergis
Make a comment  

Nov 24, 2006
Maður og tækni

Það hefur ekkert hjápað mér að gerast eldri borgari.

Mér hefur ekki tekist að rekja ýmis áhugaverð vandamál sem hafa steðjað að mér og fjölskyldu minni. Ber þar hæst vissa endurnýjun hreinlætistækja sem við byrjuðum að vinna að í september. Aldrei þessu vant höfðum við lagt til hliðar fjármagm en þá var þrautin þyngri að finna iðnarmenn. Þetta hefur skapað spennu í líf mitt svo ég hef ekki fundið mig tilknúna að fara í bíó eða að lesa spennusögur og synd að hafa ekki haft tækifæri til að skrá þetta í bloggheimum.

En það eru skýringar á öllu. Það hefur verið vesen í sambandi við tæknina. Við skiptum um netþjón og það tók sin síma að fá það til að virka eins og það átti að virka. Ég byltingarkonarn, alin upp í gamla bændasamféalginu og gildismati ömmu minnar stend tvístígandi og veit ekki hvort ég á erindi inn í bloggsamfélag unga fólksins sem hefur aldrei skitið í flór. En nú er tölvan farinað virka, það er komið klósett og baðklefi en hann er enn án vatns.

Ævintýrið um baðherbergið hefur kennt mér margt. Reynsla mín úr gamla bændasamfélginu hefur komið sér vel. Það er hægt að þvo sér með þvottapoka og það er hægt að pissa í fötu maður þarf að kunna það og það passar alls ekki að tala um það og alltra síst á blogginu.


Posted at 01:58 pm by bergis
Make a comment  

Oct 20, 2006
Ég er orðinn eldri borgari

Í gær innritaði ég mig í félag eldri borgara. Það var stórt skref. Ég hef að vísu lengi ætlað að stíga það. Það sem ýtti við mér var hugmyndin um að ég gæti á þann hátt náð mér í iðnaðarman.

Ég er orði langleið á að geta ekki þrifið mig. Baðkarinu var hent út fyrir u.þ.b. þremur vikum. Sundlaugarnar eru að vísu skammt undan og ég er með óleypis aðgang sem borgarstarfsmaður. Í sama mund og múrainn birtist gerði ég mér allt í einu grein fyrir að áður en nokkuð gerðist þyrfti ég rafvirkja. Þá gekk ég éf félagið sem leiddi að vísu ekki til neins því rafvirkinn sem ég hitti á vildi fyrst og fremst ræða við mig um það sem ég hefði átt að gera áður en ég hófst handa. En ég hef ekki tíma til að ræða reglugerðir svo ég fékk barast múrarann minn til að ganga í málið. En ég er sem sagt komin í félgið


Posted at 03:13 pm by bergis
Make a comment  

Oct 10, 2006
Haust

Enn og aftur ætla ég að takast á við það að skrifa dagbók á netinu. Ég hef saknað þess, líklega vegna þess að þetta er einföld leið til að vera í sambandi við sjálfan sig.

 

Mig langar til að ræða um haustið vegna þess að haustið er minn uppáhalds ársíð. Ég veit ekki fyllilega af hverju en sumt veit ég en annað veit ég ekki. Sumt sem er heillandi við haustið er leyndarmál.

Haustin eru að verða fegurri og fegurri og þau eru líka að lengjast. Svona er lífið dásamlegt.


Posted at 09:21 am by bergis
Comments (1)  

Jun 9, 2006
Forgangsröðun

Í kvöld hefði ég átt að vera í óvissuferð í sambandi við vinnuna eftir langan vinnudag sem var helgaður samstarfspælingum. En í gegnum krókaleiðir, hafði ég komist að því, að "óvissuferðin" var hvalaskoðunarferð og það átti að snæða um borð. Sjóferðir eru ekkert nýtt fyrir mér. Ég hef farið marga hringi í kringum landið og alltaf sjóveik, með Heklunni, Esjunni og Herðubreið (Herðubreið var best). Full af samviskusemi tók ég hlýfðarföt með mér í vinnuna, ákveðin í því að vera félagsleg. Ég var farin að velta því fyrir mér hort það væru ælupokar um borð. Mitt í afar fróðlegum fyrirlestri um samþættingu og samstarf starfsstétta kom fyrir eitt orð sem hreif mig með sér. Það var FORGANGSRÖÐUN. 

Ég ákvað að setja sjálfa mig í forgang. Fara í vorferð Hornstrandafara (í fyrra máið) í staðinn fyri hvalaskoðun. Þetta var svo sannarlega rétt forgangsröðun. Ég fann ekki fyrir sjóveiki. Töfraði fram exótíska máltíð neð mexókísku ívafi. Dóttir mín og dótturdóttir komu í heimsókn og ég fékk ókeypis ráðgjöf um bloggsíður og fjármál. Drakk bjór og hringdi í mágkonu mína sem ætlar að mæta hér klukan átta í fyrra máið og fara með mér í Hornstrandaferð um Suðurnes. Mikið er ég fegin að blokkin vaggar ekki. Lífið er ekki einfalt. Hver segir að það eigi að vera það?

Næsta blogg verður örugglega allt um Framsóknarflokkinn.


Posted at 04:18 pm by bergis
Make a comment  

Jun 7, 2006
Ekki lengur fötluð

Í dag kvaddi ég fötlun mína og henti fatlanum í ruslið. Hann er búinn að gera sitt gagn en nú er ég því sem næst búin að jafna mig. Um leið og ég lét hann fara ákvað ég með sjálfri mér að ef ég einhvern tíma í framtíðinni þarf á fatla að halda þá ætla ég að sjá til þess að hann verði fallegur. Þessir fatlar sem manni eru skaffaðir einkennast af ljótleika. Þeir minna mig á gömlu bómullarsokkana sem ég neyddist á vorin til að klæðast vegna sólbruna á fótunum og var haldið uppi með sokkaböndum.  Mér var alltaf illa við þessa sokka en þeir voru ögn skárri en ullarsokkarnir sem stungu og gerðu sólbrunann enn hræðilegri. Á þeim tíma var alltaf sól á vorin. Ef ég þarf einhvern tíma síðar að nota fatla ætla ég að sjá til þess að hann verði fallegur og í stíl við fötin sem ég klæðist. Ég gæti t. d hugsað mér að eiga látlausan hvunndagsfatla, sportlegan fatla til að nota í göngutúra og sparifatla til að nota þegar ég fer á tónleika eða í leikhús.

Ég er fegin að þessum tíma er lokið þótt ég þurfi svo sem ekki að kvarta því batinn hefur gengið vel. En það er mikill léttir að geta notað báðar hendurnar. Sérstaklega fannst mér erfitt að geta ekki notað hægri hönd til að matast, maturinn var ekki eins lystugur og að geta ekki þvegið mér og greitt mér. Og loksins kom rafmagntannburstinn sem ég hef verið hædd fyrir í Hornstrandaferðum í góðar þarfir.


Posted at 01:08 pm by bergis
Comments (1)  

May 18, 2006
bless

fer til svíþjóðar í fyrra málið

bless

 


Posted at 03:48 pm by bergis
Make a comment  

gísli minn

það er komin plata frá rússlandi

frá pétursborg

fullkomin tónlist

hvers konar tónlist er þetta?

það er  ekki hægt að kategórísera hann gísla minn

hann lætur rætast draum sem faðir hans átti en gísli kynntist aldrei

hann dreymdi um að það væri ekk hægt að setja sig eitthvert hólf

nú hefur hann (pabbinn) fengið sitt hólf en hann er kannski tiltölulega einn þar

það fylgja því bæði kostir og gallar að passa ekki í hólf

aðalatriðið er að við höfum kjark til að hlusta á þannig tónlist ef hún er góð

og njóta


Posted at 03:30 pm by bergis
Comments (1)  

ég er handleggsbrotin

ég er hadleggsbrotin

kannski er réttara  að segja brákuð

ég hef gott af því

ég læri

skrifa með litlum stöfum með vinstri hendi

ég þarf að hugsa

hugsa til breka sonarsonar míns

hann er einhentur

og verður

ég spjara mig og hann líka þótt það sé stærra mál


Posted at 03:02 pm by bergis
Make a comment  

Next Page